
Sonur minn biður um grindverk í kringum fótboltavöllinn þar sem það er leiðinlegt að boltinn renni alltaf niður brekkuna austanmegin. Einnig sem ábúandi á Borgarholtsbraut 69 (beint fyrir framan fótboltavöllinn) langar mig að biðja um að girðingin á milli okkar og fótboltavallarins verði endurnýjuð.
Núna er bara eldgömul netgirðing á milli okkar og fótboltavallarins og þar sem þetta umhverfi verður betrumbætt verður auðvitað mikil fjölgun af fólki sem fer þangað og orsakar mikið ónæði fyrir okkur hérna á jarðhæðinni og alltaf eins og fólkið sé bara í garðinum hjá okkur. Það væri tildæmis hægt að setja framlengingu á grindverkið sem er núna og við settum upp á sínum tíma sem liggur meðfram göngustígnum á milli 69-71 kannski með plastgluggum inn á milli.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation