Það vantar alla lýsingu á göngusvæði og leiksvæði við Víghól. Göngufólk þarf að vera með vasaljós þegar það gengur þarna um.
Þetta er einn af faum stöðum þar sem ljósmengun er lítil. Og spennandi að leika með vasaljós. Leiksvæði og göngusvæði með lýsingu eru næg úti um allt
Þetta er uppáhalds staðurinn minn til að skjótast út og sjá norðurljósin - einmitt útaf lítilli ljósmengun. Göngufólk sem gleymir vasaljósinu getur stuðst við lýsingu nær götunni. Ég geri það oft sjálf þegar ég vel birtuna :)
Óþarfi að fjarlægja einn af fáum stöðum innan borgarinnar til að njóta norðurljósa. Það er lýsing í götunum í kring.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation