
Sólkerfið okkar yrði sett upp í réttum hlutföllum eftir endilöngum dalnum. Lítið upplýsingaskilti við hverja plánetu um raunstærð, fjarlægð o.s.fv. Ef Sólin yrði staðsett við Andapollinn og Neptúnus við endann á Lækjarhjalla (2 km vegalengd) að þá yrði Sólin aðeins um 630 mm í þvermál og Jörðin um 5,8 mm. Í þessum stærðarhlutföllum yrði Plútó staðsettur ca í ljósadeildinni í Byko og væri aðeins um 1,1 mm í þvermál. Kostnaðurinn yrði því ekki mikill, en fræðslu og skemmtanagildið frábært.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation