
Við þurfum að varðveita það náttúrulega, sem enn er til staðar í Kópavogsdal og ALLS EKKI hlaða niður fleiri byggingum né flóðlýsingum vestast. Dalurinn er fallegur og góður til útivistar. Reyndar er mjög miður, að möguleikar á frjálsum leikjum barna t.d. í fótbolta, körfubolta, skautaiðkun, sleðaferðum o.fl. eru mjög takmarkaðir, börn og unglingar fá ekki leyfi til að nota vellina án þess að vera á skipulögðum æfingum. Það mætti huga betur að öryggi barna í sleðaferðum norðan við kirkjuna.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation