Innanlandsflug sem almenningssamgöngur

Innanlandsflug sem almenningssamgöngur

Allir landsmenn eiga sjálfsagðan rétt á þeirri þjónustu sem við höfum sameiginlega byggt upp í höfuðborg landsins. Það er hlutverk hins opinbera að jafna eins og kostur er aðgang að henni. Með því að fara í þessa öflugu byggðaraðgerð verða Austur-Vestur- og Norðurland mun áhugaverðari til búsetu. Ég er sannfærður um að margir sem búsettir eru í Reykjavík og nágrenni myndu þá horfa til þess að búa út á landi vitandi það að þeir hafi öruggt aðgengi á sanngjörnum verðum við höfuðborgina.

Points

Dýrt innanlandsflug er hamlandi fyrir landsbyggðina sem þarf að sækja þjónustu og afþreyingu til höfuðborgarinnar. Við líðum fyrir dýrt innanlandsflug þar sem flugverð gerir svæðið ósamkeppnishæft um fólk og fyrirtæki, sem veldur því að fólk sest síður að og flyst á brott eftir stutta dvöl. Frá 2007 hefur innanlandsflug í Skotlandi verið niðurgreitt fyrir ákveðin svæði, slíkt kerfi er einnig í gangi fyrir íbúa Kanaríeyja sem þurfa að sækja þjónustu til meginlands Spánar. Þetta hefur virkað vel.

Meðan innanlandsflugið er í Reykjavík - nær það ekki að bæta rekstrastöðuna með flugi með ferðamenn - það má vissulega skoða niðurgreiðslur fargjalda fyrir íbúa úti á landi - meðan Flugfélag Íslands er að ná góðri sætanýtingu frá Keflavík - hraðlestin virðist vera í pípunum - svo ferðatími lengist mjög lítið við fluttning til Keflavíkur - en þar sem einhver misseri eða ár - eru í hraðlestina þá má líka vel hugsa sér að niðurgreiða fargjöld þar til lestin kemst í gagnið

Miklu , miklu frekar ætti að veita skattafslátt og sambærileg fríðindi fyrir þá sem (sannarlega) búa langt frá höuðborgina, svipað og gert er í nyrstu héröðum Noregs. Til samanburðar er óskilvirkt og hvetur til mikillar mengunar að niðurgreiða flugferðir.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information