
Ævintýralega skemmtileg og skapandi listasmiðja með áherslu á endurnýtingu, gæða fjölskyldusamveru, samspil barna og fullorðinna, leikgleði og sköpun. Memmm Play hefur staðið fyrir skapandi smiðjum fyrir fjölskyldur um árabil, þar á meðal bátasmiðju á Hátíð Hafsins og núna í Húsdýragarðinum sumarið 2023. Memmm Play setur upp smiðjuverkstæði þar sem öll eru velkomin og geta leyft hugmyndafluginu að leika lausum hala. Valdefling, gæða verkfæri og endurnýttur efniviður eru í forgrunni.
Skapandi listasmiðja Memmm Play er frábær vettvangur fyrir fjölskyldur til samveru og leiks, þar sem ferlið sjálft og leikgleðin ræður ríkjum. Það jafnast fátt við gleðina í augum barns sem búið er að hanna og smíða eigin listaverk með foreldri sínu eða vin. Samspilið sem skapast á verkstæði Memmm Play er engu líkt og gæðir umhverfið gleði, ævintýrum og lífsins leik. Vikuleg smiðja í hjarta Kópavogsbæjar myndi sameina unga og eldri íbúa á nýjan og spennandi hátt.
Memmmarar eru einnig að þróa skapandi smiðjur sem hægt er að bjóða upp á innandyra og væri það frabær kostur í Kópavogi í Íslenska veðrinu.
Flottur vettvangur foreldra og barna til að verja tíma saman, valdeflast og skapa góðar minningar.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation