Opinn leikskóli Memmm Play (OLMP)

Opinn leikskóli Memmm Play (OLMP)

Opni leikskólinn er vettvangur samveru fjölskyldna allra yngstu barna samfélagsins. Memmm Play veitir vettvanginn fyrir samveru, tengsl, söng og leik í fallegu umhverfi hönnuðu með þarfir yngstu barnanna að leiðarljósi. Opni leikskólinn er gjaldfrjáls og ekki er þörf á skráningu. Foreldrar/forsjáraðilar mæta með börnunum í opna leikskólann, hitta aðrar fjölskyldur, stækka tengslanet sitt, syngja og leika sér saman. Opni leikskólinn hentar t.d. vel foreldrum/forsjáraðilum í fæðingarorlofi.

Points

Öll hafa þörf fyrir tengsl í daglegu lífi og ekki síst foreldrar/forsjáraðilar í fæðingarorlofi, eða sem kjósa að vera frá vinnumarkaði af öðrum ástæðum og með ung börn sín heima. OLMP er nú þegar starfræktur á tveim stöðum í Reykjavíkurborg og er um þriðjungur þeirra sem sækja hann vikulega búsettir í kópavogsbæ. OLMP er frábær vettvangur til tengslamyndunar og það að bjóða upp á hann einu sinni í viku hið minnsta myndi styrkja Kópavogsbæ sem fjölskylduvænt sveitarfélag.

Nú þegar margir foreldrar eru heim með börnin þar sem bið eftir leikskólaplássi er mikil er nauðsynlegt að Kópavogur komi með einhver úrræði fyrir foreldra að hitta annað fólk og fyrir börnin að umgangast önnur börn. Einnig fyrir fólk sem kýs að vera heima með börn. Gríðarlegur fjöldi sem sækir opna leikskólann í Reykjavík og mikilvægt að Kópavogur styðji við þetta frábæra starf og geri þeim kleift að hafa opna leikskólann ofar og í lengri tíma í senn

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information