
Selja íslenskt grænmeti, s.s. gúrkur, tómata, paprikur, gulrætur og kál einu sinni í viku . Kannski munu íslenskir bananar skjóta upp kollinum ásamt gómsætum íslenskum jarðaberjum. Hægt verður að kaupa rósabúnt frá blómabændum sem munu gleðja augað. Gott væri að gera grasflöt og fjölga bekkjum til að hvíla lúin bein, tengja sig og tengjast öðrum. Takk - Björk & Sigurður
Hamraborgin er menningarlegt tákn, staðurinn þar sem pönkið fæddist.. Eitt sinn var hún miðbær höfuðborgarsvæðisins en það hefur breyst með ört stækkandi borg. Að setja upp grænmetismarkað gæti skapað félagsleg tengsl manna á milli og gert staðinn eftirsóknarverðan til að staldra við á og skoða. Nóg er að sjá því Hamraborgin svíkur ekki. Ungmenni í skapandi sumarstörfum geta verið með viðburði á torginu samtímis og þannig eflum við samvinnu milli stofnana. Berum grænmeti á Hálsatorg.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation