
Búa til rými eins og sjáum t.d. á Norðurlöndunum þar sem eru lagt mikið upp úr sýningu, fræðslu og upplifun barna. Hægt væri t.d að tengja betur Náttúrufræðisafnið við leik barnanna í rýminu, bjóða upp á leiktæki tengt náttúruvísindum, vera með viðburði og popup sýningar tengt safninu. Með því að opna bókasafnið meira og bjóða upp á fjölþættari starfsemi er líklegt að fólk komi úr öllum áttum, bæði til að ná sér í þekkingu auk þess að taka þátt í samfélaginu í Kópavogi.
Bókasöfn gegna mikilvægu hlutverki fyrir þekkingu og þroska íbúa frá skólaaldri. Með því að nýta þau meira, gera þau aðgengilegri er líklegra að fólki haldi áfram að sækja söfnin og nái sér í þekkingu til gagns og fróðleiks, bæði fyrir sig og samfélagið okkar.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation