Bæta eftirlit með ljósum á göngu- og hjólreiðastígum

Bæta eftirlit með ljósum á göngu- og hjólreiðastígum

Fela ökumönnum tækja sem salta og moka snjó á göngu- og hjólreiðastígum að láta vita af biluðum ljósum á stígunum

Points

Það er mikið um að ljós á göngu- og hjólreiðastígum bæjarins séu biluð svo vikum og mánuðum skiptir. Eftirliti ON og HS veitna er greinilega mjög ábótavant. Á dimmasta tíma árins eru tæki á vegum bæjarins sem keyra reglulega um stígana og salta og moka snjó. Það væri upplagt að fela ökumönnum þessara tækja að skrá niður og láta vita af biluðum ljósum til þess að hægt sé að gera við þau eins fljótt og hægt er. Þetta ætti ekki að fela í sér neinn auka kostnað en myndi bæta eftirlitið mikið.

Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verður komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farin af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information