Sveit í bæ - opið grænt svæði

Sveit í bæ - opið grænt svæði

Grænt opið svæði í anda hugmyndafræðinnar um “sveit í bæ” sem þetta hverfi var einmitt skipulagt eftir. Það mætti gróðursetja tré og byggja upp skjól án þess að skipuleggja svæðið sérstaklega að öðru leyti. Íbúar nærliggjandi húsa gætu fóstrað þennan blett og haldið honum snyrtilegum eins og löng hefð er fyrir. Ekki er þörf á göngustígum um þetta svæði. Ekki verði settur grillkofi, sparkvöllur eða sleðabrekka á svæðið þar sem það passar ekki á nokkurn hátt inn í umhverfi og aðstæður.

Points

Sammála!!

Fullkomlega sammála. Alls ekki eyðileggja þetta fallega svæði með göngustígum, grillkofa eða leiksvæði. Nóg af slíku í hverfinu. Við, íbúar gætum í sameiningu gróðursett tré og haldið svæðinu "ósnertu".

Ekki verði gerðir sérstakir göngustígar um svæðið enda ekki þörf á því þar sem nú þegar til staðar malbikaður, upplýstur göngustígur frá Dimmuhvarfi yfir í Melahvarf. Það er mjög gott leiksvæði milli Grundar- og Brekkuhvarfs þar sem hægt er að setja fleiri leiktæki og gera fína hluti. Grillhús, sparkvöllur og sleðabrekka á alls ekki heima á þessum stað í passar ekki á nokkurn hátt inn í þetta umhverfi, aðstæður og návígi við hesta.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information