Innsend hugmynd frá íbúa - göngustígar Dimmuhvarf-Melahvarf

Innsend hugmynd frá íbúa - göngustígar Dimmuhvarf-Melahvarf

Innsend hugmynd frá Halldóru Hauksdóttur: Leggja göngustíga frá Dimmuhvarfi að Melahvarfi.

Points

Það er nóg af göngustígum út um allt, væri frekar að nota peninginn í að gera gangstétt í Fornahvarfi þar sem börn eru á leið í skólann.

Nýr göngustígur sem myndi liggja á milli Dimmuhvarfs 7b og 9/9a myndi eingöngu stytta gönguleiðina um ca 90 metra og mun ekki vera malbikaður, mokaður að vetra né er upplýstur alla leið að skólanum. https://bit.ly/2MEiNn2

Malbikaðir og upplýstir göngustígar eru í næsta nágrenni sem tengja Dimmu- og Melahvarf við Vatnsendaskóla og leiksvæði, því er óþarfi að leggja nýjan stíg sem nýtist örfáum. Þær gönguleiðir sem þegar eru til staðar að Vatnsendaskóla eru jafnlangar og gönguleið eftir nýjum stíg í gegnum þetta svæði frá Dimmuhvarfi yfir í Melahvarf og því ekki um neina hagræðingu að ræða. Prýðisgóð gönguleið liggur upp Dimmuhvarfið þar sem er stígur beint inn á Melahvarf og þaðan upp að skóla og leiksvæði.

Engin þörf á slíku. Það er gangstétt gegnum allt Dimmuhvarfið og upp í Melahvarf. Göngustígagerð á milli lóða við Dimmuhvarf 7b, 9a og 9b yrði að auki erfið í framkvæmd, hæðamunur er mikill og óljóst hvernig hægt væri að ganga frá stíg án þess að raska lóðum nærliggjandi húsa og skapa hættu vegna hæðarmunar á lóðum. Einnig eru stór tré sem þyrfti líklega að fella við slíka stígagerð.

Mjög góður upplýstur göngustígur er þegar til staðar sem tengir Dimmuhvarf við Melahvarf sem og stígakerfi að Vatnsendaskóla og leiksvæði. Þessi stígur er með vetrarþjónustu og malbikaður alla leið að skólanum. https://bit.ly/3sEtS6D

Malbikaðir og upplýstir göngustígar eru í næsta nágrenni sem tengja Dimmu- og Melahvarf við Vatnsendaskóla og leiksvæði, því er óþarfi að leggja nýjan stíg sem nýtist örfáum. Þær gönguleiðir sem þegar eru til staðar að Vatnsendaskóla eru jafnlangar og gönguleið eftir nýjum stíg í gegnum þetta svæði frá Dimmuhvarfi yfir í Melahvarf og því ekki um neina hagræðingu að ræða. Prýðisgóð gönguleið liggur upp Dimmuhvarfið þar sem er stígur beint inn á Melahvarf og þaðan upp að skóla og leiksvæði.

Mikill kostnaður er við göngustígagerð að svæðinu ásamt gríðarlegu jarðraski og töluverðum trjáfellingum. Mörg brýnni verkefni eru í neðri Hvörfum sem þarfnast skoðunar og kalla á úrbætur. Eitt af þeim er t.d. Fornahvarf sem er án göngustíga eða gangstétta sem er stórundarlegt í ljósi þess hvað vatnið hefur mikið aðdráttarafl og þann gríðarlega fjölda akandi, gangandi og hjólandi fólks sem þar fer um daglega.

Göngustígagerð á milli lóða við Dimmuhvarf 7b og 9/9a er erfið í framkvæmd, hæðamunur er mikill og óljóst hvernig hægt er að ganga frá stíg án þess að raska lóðum nærliggjandi húsa og skapa hættu vegna hæðarmunar á lóðum. Einnig eru stór tré sem þyrfti líklega að fella við slíka stígagerð.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information