Gangbraut á gönguás Sigtún/Engjavegur

Gangbraut á gönguás Sigtún/Engjavegur

Gangbraut eða einhverjar slíkar breytingar sem myndu auka öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda þar sem Sigtún þverar Engjaveg - umferðar sem mun aukast með tilkomu nýs miðbæjar. Myndi styrkja fínan gönguás í miðbæinn, þangað sem fólk sækir þjónustu og vinnu og börn og unglingar í félagsmiðstöð.

Points

Mikil gangandi umferð er á gatnamótum þar sem Sigtún þverar Engjaveg, sem mun bara aukast með tilkomu nýs miðbæjar. Fólk fer þarna um á öllum tímum dagsins, á leið inn í bæ, í verslanir, til vinnu í göngu með ánni og upp í skóg í útivist og þetta er gönguás barna og unglinga á leið í félagsmiðstöðina. Oft má litlu muna þegar ökumenn búast ekki við gangandi umferð að koma eða nýkomnir að/frá ljósum. Gangbraut myndi styrka þennan fína gönguás inn í miðbæ.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information