Stórar rennibrautir fyrir börnin og stærri sólbaðslaugar.

Stórar rennibrautir fyrir börnin og stærri sólbaðslaugar.

Setja upp fleiri og stærri rennibrautir til að trekkja að ferðamenn innlenda sem erlenda. Sundlaug Akureyrar er gott dæmi um hvað er hægt að gera á Selfossi, nýta plássið til að setja upp rennibrautir sem eru stærri og öðruvísi en hefbundnar. Fyrir fullorðna fólkið er hægt að setja upp flottar og stórar grunnar vaðlaugar til að slaka á og vera í sólbaði. Gott dæmi er Sundlaug Akureyrar sem er ein vinsælsta laug landsins, toppum hana bara :)

Points

Afþreying fyrir börn og fullorðna trekkir að innlenda ferðamenn sem myndu stoppa á Selfossi, eyða meira tíma þar. Fá sér Ís á eftir og jafnvel stoppa eftir sund á veitingastað og fá sér að borða. Margir af höfuðborgarsvæðinu myndu gera þetta sem helgarúnt og svo þeir sem eru að ferðast í gegn á leið í sumarbústað eða á leið í útileigu. Erlendir ferðamenn myndu einnig flykkjast í Sund ef aðstaða fyrir börn og fullorðna væri mjög metnaðarfull. Sundlaug Akureyrar er fullkomið dæmi.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information