Hættuleg gatnamót göngustíga við Lóurima

Hættuleg gatnamót göngustíga við Lóurima

Þar sem göngustígur fer út úr Lóurima inn á göngustíg sem liggur á bakvið raðhús Lóurima er mikil hætta á árekstrum þeirra sem eiga leið um. Oft hafa þarna orðið minniháttar slys þegar fólk rekst saman, yfirleitt börn þegar komið er fyrir hornið. Ástæðan er að beggja vegna við göngustíginn eru háir skjólveggir aðliggjandi lóða sem mynda algjörlega blint svæði þegar fara á inn á göngustíginn. Undanfarið hefur orðið vart við mikinn hraðakstur þarna á mótor- og hlaupahjólum sem auka hættuna.

Points

Afstýra verður slysum barna sem þarna eiga leið hjá daglega til skóla.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information